What is mind? No matter. What is matter? Never mind

Gleður þig að sjá mig!!

03.06.2008 11:45:29 / Hafrún Brynja

Reykjavík...Helena og Davíð

Það fer alveg að styttast í gleðihelgina með Helenu og Davíð. Verst finnst mér samt að þurfa að fljúga föstudaginn 13....:!: hehe

Flýg suður á föstudeginum og ég og Helena ætlum að hafa stelpukvöld. Davíð sykurpúði er að vinna til 10 þannig að við ætlum út að borða og fá okkur hvítvínsglas og svo slúðrum við út í hið óendanlega. Laugardagurinn verður tekinn snemma og frísklega, því hún Helena mín er að útskrifast með BA í félagsráðgjöf. Hún Helena hefur staðið sig svo vel í skólanum að það er ekki annað hægt en að vera stolt. Einkunnirnar hennar hafa verið frábærar frá því hún byrjaði, ég er svo stolt af henni og ánægð með hana. Innilega til hamingju með þennan frábæra árangur Helena mín:haha:
Farið verður í útskrift, galaklæddur og grátið tárum af stolti yfir henni Helenu;) Um kvöldið förum við Helena, Davíð, Hanna Dóra og Helga mamma Helenu út að borða, svo förum við "krakkarnir" út að djamma;) Sunnudagur fer sjálfsagt í þynnku og viðbjóð en það er allt í lagi því ég verð fram á þriðjudag með þessum elskum mínum;)

Ég get eiginlega ekki beðið eftir að hitta þau. Sá þau síðast 24.janúar á afmælinu hennar Helenu þegar að ég flaug suður til að smella afmæliskossi á hana:) hehe

Verð að halda áfram að vinna, tel bara niður dagana þangað til að ég kemst til Helenu og Davíðs.

Sakna ykkar óendanlega mikið...!!

Hafrún - hamingjusöm á leiðinni að hitta Helenu og Davíð:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 14:16:17 / Hafrún Brynja

Afmæli

Hún elskuleg móðir mín á afmæli í dag. Innilegar hamingjuóskir með 54.....31 árs afmælið elsku mamma mín.

Kv. Hafrún.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 16:10:44 / Hafrún Brynja

Snilld

Langar mig bara að benda fólki á þessa snilld:haha:

http://www.123.is/eddi/home/&lang=is

Hann Eddi frændi er aðalmaðurinn;) hehe

Kv. Hafrún - klárlega gullfalleg

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 11:02:19 / Hafrún Brynja

Smá greiði.

Langar mig til að biðja Kaupfélag Héraðsbúa (Samkaup) að taka niður jólatréð. Það er að koma júní og svo skyggir þetta á útsýnið úr glugganum í vinnunni hjá mér.

Með fyrirfram þökk.

Hafrún Einarsdóttir.

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 10:33:19 / Hafrún Brynja

Frábært líf í alla staði!

Rosalega er ég væmin manneskja en þar sem að mér finnst það töff þá er mér alveg sama.
Sit hérna í vinnunni að skoða síður litlu frændna minna. Fór að hugsa út í þá alla þrjá. Gísli í Reykjavík, Einar á Akureyri og Sigurður hér. Þessir þrír drengir eru mér allt, þessi litlu, yndislegu ljós hafa gefið mér svo mikið að ég get ekki einu sinni lýst því með orðum. Ég bókstaflega lifi fyrir þessi gull. Ég hef komið fram við þá eins og mína eigin drengi, siðað þá til þegar þarf, þerrað tár og huggað og jafnvel grátið með því það fer með hjartað mitt þegar að þeir eiga erfitt. Knúsa þá og kyssi eins og enginn sé morgundagurinn, ofdekra þá alveg út í hið óendanlega. Myndi gefa þeim þeim heiminn ef þeir myndu biðja um það. Og svo elska ég þá meira en allt annað í lífinu. Merkilegt að svona litlar manneskjur sem enn eru að þroskast og læra á heiminn geti gefið manneskju eins og mér svona rosalega mikið, stundum veit ég hreinlega ekki hvar ég væri án þeirra. Þeir eru mér gjörsamlega allt. Það er yndislegt að geta fylgst með þeim í lífinu, yndislegt að fá að heyra "Hafrún frænka, þú ert sko best". Stundum get ég grátið yfir enhverju sem þeir gera því í mínum augum er það allt kraftaverk. Þessi englar eru mér lífið.

En nóg af væmni býst ég við;) Það var farið í sveitina aftur síðustu helgi, næturvaktir teknar, matur eldaður og leikið við börn. Það er svo gott að vera í sveitinni að það liggur við að ég hætti öllu hér og flytji bara. Óska eftir vinnumönnum nú þegar í stað;) Heimsóttum Ingunni syss og Húna bró á Aðalból. Einnig þá bræður Sindra og Davíð, þeir voru í sveitinni. Sindri með agalega fallegan bláan ökkla....flott að stíga í holu sem hefur verið þarna síðan að hann man eftir sér. Þessi helgi var eintóm gleði og hamingja í gegn. Þvílíkt notalegt, er að spá að taka mér bara sauðburðarfrí næsta vor og vera bara þarna, þetta var svo gott.

Júróvísíon og útskrift og ball næstu helgi. Held að það sé kominn tími til að fá sér bjór. Var spurð að því um daginn hvort ég hefði farið í meðferð....??? Nei...reyndar ekki...hehe. Horfði einmitt á undankeppnina í gær og ég verð þvílíkt svekkt ef að Ísland kemst ekki áfram, fannst flest öll þessi lög ekki eiga heima þarna. Mér fannst Noregur standa upp úr. Ég er samt alveg pottþétt á því að Ísland kemst áfram, í fyrsta skipti í langan tíma og þá er sko ástæða til að fagna.

Annars styttist bara í sumarfrí og gleði. Styttist með hverjum deginum í utanlandsferðina miklu og er ég að verða einum of spennt. Borgaði nefnilega bílaleigubílinn í gær;)

Svo er líka allt þetta glimrandi að frétta, lífið er dásamlegt í alla staði og hefur mér aldrei liði betur á ævinni:) Nýt þess að vera til og eiga allt þetta fólk í kringum mig. Vil ekki missa af einni mínútu í þessar yndislegu veröld:)

Langaði bara að deila með ykkur væmninni í mér, gleðinni, hamingjunni og spenningnum.

Hafrún - Hamingjan að fara með mig:D

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 13:45:21 / Hafrún Brynja

Sveitarferð gleðinnar!

Jæja þá er sveitarferðinni lokið. Ég og Sirrý skunduðum af stað með skottið fullt af snakki og mat upp í Vaðbrekku síðasta föstudag. Þar tóku á móti okkur, Steini, Björk, Danni og Rannveig. Gleðin snerist um át, bakstur, hlátur og jú auðvitað sauðburð. Þetta var þvílíkt hressandi að komast svona í sauðburð, veðrið hefði mátt vera skárra en því var ekkert hægt að breyta. Ég og Sirrý vorum duglegar í eldhús málum og fórum út í fjárhús þegar að við gátum. Tókum næturvaktir á móti Steina og Alla, það var eintóm gleði. Á næturnar voru rollurnar skírðar í höfuðið á ólíklegustu karakterum úr sjónvarpsseríum sem eru í uppáhaldi hjá okkur Sirrý. Síðasta næturvaktin fór í rugl og hlátur, endalaus gleði alveg hreint. Stefnan er tekin á Vaðbrekku aftur næstu helgi, það verður einum og ljúft. Sumt sem var sagt þessa helgi er engan veginn hægt að hafa eftir á netinu, mestan þátt í gríni og glensi átti Þorgils, drengurinn sá til þess að okkur leiddist ekki. Rannveig kom þar sterk inn á eftir. Þau björguðu helginni;)

Svo styttist í útskrift og Júróvísjón....ég krossa fingur til að ein frábær og yndislega manneskja geti komið og djammað með mér...Þú veist að þér er boðið í partý;)

Best að halda áfram að vinna og hlægja að bröndurum síðustu helgar.

Hafrún - Endalaust hamingjusöm að hún gæti sprungið;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 08:37:45 / Hafrún Brynja

Hræðsla....(Væmið blogg)

Stundum kemur eitthvað uppá sem fær mann til að verða svo hræddan að hjartað stoppar. Þegar að svona eitthvað kemur upp á verður manni það ljóst að ekkert er sjálfsagt í heiminum. Þegar að eitthvað svona kemur upp á fattar maður að maður nýtur ekki hverrar mínútu af lífinu.
Ingunn syss hringdi í gær og sagði mér að pabbi minn hefði verið fluttur með sjúkrabíl norður á sjúkrahúsið. Hjartað í mér stoppaði, svo grét ég ósjálfrátt heillengi. Ég hef aldrei verið svona hrædd á ævinni, mér hefur aldrei liðið eins illa á ævinni, ég hef aldrei verið eins ósjálfbjarga og lítil í mér á ævinni.
Pabbi minn er súperman fyrir mér, hefur alltaf verið og mun alltaf vera.
Ég samt komst að því að pabbi minn er ekki ósnertanlegur.

Pabba mínum heilsast vel, guði sé lof!!

Pabbi minn, ég elska þig.

Hafrún - Hræddust í heimi um pabba sinn í augnablikinu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 13:16:47 / Hafrún Brynja

Afmæli.

Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Sigurður,
hann á afmæli í dag.

Jú mikið rétt, guðsonur minn er 1s árs í dag. Það var haldin afmælisveisla í Dalselinu í gær. Þvílíkar veitingar og almennilegheit, þetta var auðvitað tóm gleði. Hrafndís, Hemmi og Gísli voru hérna um helgina sem gerði þetta enn betra, vildi að þau hefðu getað stoppað lengur.

Annars er allt gott að frétta, sumarfríið ákveðið eða að minnsta kosti hluti af því og ég er orðin rosa spennt. Þetta verður yndislegt í alla staði.

Hef annars ekkert mikið að segja. Langaði bara að deila með öllum að ástin mín og yndi Sigurður Óttar á afmæli í dag. Drengurinn hefur fært mér svo mikla gleði að orð fá því ekki lýst. Elska hann meira en allt. Kossar og knús á hann.

Hafrún - hamingjusama konan;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 09:42:30 / Hafrún Brynja

Hamingja!

Foreldrar mínir eru að koma til landsins á miðvikudaginn, ekki föstudaginn eins og ég sagði öllum. Ég gæti ekki verið meira spenntari því jú ég viðurkenni það fúslega að ég hef saknað þeirra þvílíkt mikið:p
Og gleðin verður meiri því Hrafndís systir og Gríslingurinn minn koma með:D Mamma og pabbi taka Gísla með sér að sunnan og grípa Hrafndísi í Stykkishólmi. Gleðin verður óendanlega í næstu viku. Það verður yndislegt að hafa Hrafndísi og Gísla hérna loksins.

Dagarnir líða hérna í sæluvímu því lífið gæti ekki verið betra. Mér hefur sjálfsagt aldrei liðið betur á ævinni, allt virðist vera að smella saman hjá mér sem er náttúrlega bara frábært.

Guðsonur minn er að verða 1s árs næsta mánudag. Þvílík og önnur eins gleði, drengurinn er orðinn svo stór og verður fallegri með hverjum deginum. Hann ætlar að vera alveg jafnfallegur og frænka sín og guðmóðir;) hehe.

Sumarið er komið vil ég halda á Egilsstöðum, kom smá snjókoma á laugardagskvöldið en var alveg horfin á sunnudaginn aftur. Endalaus gleði. Bráðum get ég farið að ganga um í stuttum buxum, hlírabolum og sandölum. HVERSU MIKIL GLEÐI?? :D
Get ekki beðið eftir að sitja á pallinum hjá pabba og mömmu að fá sér einn öl eða svo, það verður nefnilega alltaf svo fjári heitt á pallinum hjá þeim.
Sumarið verður eintóm gleði þar sem að ég sé fram á ferðalög, heimsóknir og bjórdrykkju með svo fallegu fólki að ég get ekki beðið.

Ætla að halda áfram að vinna. Labbaði hérna fersk í vinnuna í morgun, falleg eins og alltaf.
Munið að þið getið valið hvernig þið háttið lífi ykkar:) Komið fram við aðra eins og þið viljið að þeir komi fram við ykkur.

Hafrún - sú hamingjusamasta með allt og alla í kringum sig. Hef aldrei haft það betra með gott og traust fólk í kringum sig og þarf ekki fleiri;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 11:50:26 / Hafrún Brynja

Lokkttendlód

Sá útlending áðan á Esso planinu að leika sér í polli. Leit út fyrir að vera að þvo skóna sína, en ég held að hann hafi bara verið að sulla í polli. Svo var hann að drekka páskaöl. Hversu miklum peningum eyddi maðurinn í að koma til Íslands, einungis til að leika sér í pollum og drekka páskaöl?? Ég er ánægð með hann.

Sveðjumorðinginn var handtekinn....get loksins farið aftur út úr húsi.

Það er slátur í matinn heima hjá mér í kvöld. Allir velkomnir sem vilja. Verðið samt að láta mig vita fyrst svo ég geti skellt meira í pottinn.

Blessaður.....!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 11:59:00 / Hafrún Brynja

2 vikur foreldralaus

Jæja, foreldrar mínir fara í sitt langþráða frí næsta þriðjudag. Þau fara keyrandi suður á sunnudaginn og ætla að taka því rólega í Reykjavíkinni þangað til að þau fara út til Spánar. Var einmitt að lakka táneglurnar á henni mömmu svo hún geti verið agaleg skvís í opnum skóm. Tókum smá snyrtikvöld við mamma síðasta sunnudagskvöld:d Takk fyrir það mamma;)
Á meðan flyt ég mitt dót yfir í Bjálfatröðina til að "passa" Húna bróður. Ég hlakka nú eiginlega bara til og hef sterka trú á því að þetta verði rosa gaman. Veit ekki alveg með 16 ára hormónafulla bróður minn. En hvort sem honum líkar betur eða verr þá verð ég þarna í tæpar 3 vikur meðan að foreldrarnir eru í burtu. Hann telur sig geta verið einn heima og hefur örugglega skipulagt fleiri partýin á meðan að foreldrarnir eru í burtu. En neiiii....hann hefur bara systur sína og kósíheit. Hann hefði líka byrjað að grenja eftir 2 daga einn heima og grátbeðið mig um að koma og vera hjá sér, þannig að ég ætla bara að koma honum hjá þeirri skömm og flytja inn strax. Þannig að ekki misskilja...ég er ekki að flytja heim til foreldra minna aftur til frambúðar...bara í smá stund.

Ég er alveg pottþétt á því að sumarið er komið á Egilsstaði. Ég hef nýtt mér tækifærið í góða veðrinu og labbað í vinnuna og svona....þvílíkt hress.

Guðsonur minn hann Sigurður Óttar dafnar rosalega vel og verður yndislegri með hverjum deginum. Svolítið frekur á athygli þessa dagana en þar sem að ég frænka hans bráðnar í hvert skipti sem ég sé hann þá fær hann alla mína athygli.

Er að vonast til að Hrafndís geti bara tekið sér frí og komið austur með Gríslinginn og verið smá hjá okkur. Grísli er svolítið duglegur að tala við mig þegar að hann er hjá mömmu sinni. Ég skil hann ekki alveg þegar að ég tala við hann í símann en það er bara allt í lagi, hann er svo fyndinn. Hefur stundum frá svo mörgu að segja.

Einar Jóhann minn er að verða 11 ára í sumar. Mér finnst eins og ég hafi haldið á því barni síðast í gær. Því miður er hann að verða stærri en ég, eða það styttist að minnsta kosti í það.

En ég held að það sé ekkert fleira væntanlegt hjá mér á næstunni. Jú ég var plötuð til að fara á ball næstu helgi....það þarf svo sem ekki mikið til að plata mig á svona samkomur...það verður dansað eins og það sé enginn morgundagurinn. Verður fyndið að labba inn í Valaskjálf á ný til að fara á ball. Þvílík gleði.

Svo jú styttist óðum í Reykjarvíkurferð gleðinnar. Verður tekin þar gleðihelgi með þeim Davíð og Helenu, þeim elskum. Get engan veginn beðið.

Annars var þetta allt, er enn einhleyp og finnst það alveg hreint merkilega gott. Lifi bara fyrir sjálfan mig og mínar þarfir, hversu gott getur lífið orðið?

Smá væmni í lokin. Hvar væri ég án góðra vina, ættingja og með mína ástkæru fjölskyldu?? Þau eru öll svo yndisleg.

Hafrún - Aldrei hamingjusamari með allt sitt og sína.

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 14:44:13 / Hafrún Brynja

Hummmmm...

Sumt fólk breytist með aldrinum, sumt gerir það ekki. Ég veit að ég hef breyst með aldrinum, skapmunir mínir hafa breyst heilmikið. Ég hef orðið léttari í lund og hætt að verða brjáluð yfir öllum sköpuðum hlut. Ég lærði bara að telja upp að tíu og viti menn, manni rann reiðin. Með árunum hef ég ekki einu sinni þurft að telja upp að tíu, ég bara hreinlega nenni ekki að verða reið út af einhverjum smámunum og þaðan af síður að eyða öllum dögum í pirring og fýlu. Það er sumt fólk sem nennir endalaust að eyða öllum dögunum sínum í pirring, nöldur, tuð og vesen. Ég gerði það líka einu sinni en komst síðan að því hvað það gefur mikið af deginum að hætta því. Maður er miklu hamingjusamari, miklu meiri orka sem maður hefur og skapið er miklu betra. Mér var sagt þegar að ég var 18 ára að skapið í mér væri það versta við mig. Tók ég þeim orðum inn á mig og reyndi að bæta mig, strax um tvítugt var ég orðin líka miklu hressari týpa og leið miklu betur. Sumir nenna ekki að hlusta þegar að þetta er sagt við þá, koma jafnvel með fáránleg rök um það hvernig þeim kemur ekki við hvernig skapið er í þeim. En það er einmitt málið, það kemur fólki við sem þarf að umgangast mann. Á endanum hættir maður að sýna áhuga á þessum manneskjum vegna eilíflegrar neikvæðrar hugsunar og hundleiðinlegs nöldurs. Sumar manneskjur geta einfaldlega ekki tekið svona ábendingum um þeirra eigin skapmuni, segir að manneskjan sem bendir á þetta sé verri í skapinu en hann/hún sjálf/ur og ætti því að líta í eigin barm. Frekar lélegt svar og er þetta eina svarið sem hann/hún kemur með á móti því hann/hún er að reyna að láta sjálfan sig líta betur út.
Það er ekkert að því að viðurkenna að skapið í manni sé alveg hreint fáránlegt og reyna þá að vinna í því í staðinn fyrir að vera alltaf brjáluð/aður.

Einnig þýðir ekki alltaf að vera að agnúast í öllum öðrum. Mér finnst fólk sem endalaust getur hneykslast út í aðra yfir smámunum ekkert betra. Hvað með þótt nágranninn þinn gerir ekki allt eins og hentar þér best?? Hugsum fyrst og fremst um okkur sjálf en ekki alltaf pirrast út í hina og þessa yfir því hvernig þeir gera hlutina. Fólk gerir hlutina öðruvísi og því óþarfi að pirrast út af því. Því jú, maður hlýtur að gera þá eitthvað sem að pirrar hina en ég stórefast um að fólk fari strax á 7000 snúninga af brjálæði. Ef svo væri þá væri morðtíðni sjálfsagt miklu hærri.

Munum bara að við höfum bara eitt líf og ég held að það sé best að lifa því eins og það sé enginn morgundagur, því jú....það kemur að því að það verður enginn morgundagur einn daginn og ekki viltu að fólk minnist þín sem manneskju sem eilíflega tókst að draga aðra niður með neikvæðri hugsun, nöldri, væli, veseni og brjáluðu skapi.

Njótum lífsins á meðan við getum. :d

Hafrún - Klárlega predikarinn í dag;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 13:07:48 / Hafrún Brynja

Lífið er yndislegt í alla staði.

Úff, er ekki klárlega kominn tími á blogg?? Ég held það svo innilega.

Páskafríið var alltof fljótt að líða eins og öll önnur frí. Það snerist bara um matarboð, kaffiheimsóknir og slúður. Einar Jóhann var hérna sem var bara eintóm gleði. Bauð honum út að borða á Yfir borðið og borðuðum við bæði eins og við hefðum aldrei fengið að borða áður. Mesta snilldin var samt matarboð hjá mömmu og pabba, frábær matur, gott rauðvín og svo auðvitað talað og hlegið saman endalaust. Yndislegt í alla staði þegar að fjölskyldan kemur svona saman, þetta var það besta í páskafríinu:) Síðan var kíkti á ball með fríðu föruneyti, þvílík gleði. Það var dansað eins og það væri enginn morgundagur. Núna bíður maður bara eftir næsta fríi…hehe.

Lífið gengur sinn vanagang, endalausar kaffiheimsóknir eitthvert, slúður og yndislegheit. Sigurður minn stækkar og stækkar með hverjum deginum. Ég held að hann verði frekari og frekari með hverjum deginum, honum finnst skemmtilegast að láta ýta sér á þríhjólinu sínu eða bílnum sínum. Hann verður fallegri og fallegri;) Gísli minn er duglegur að hringja í frænku sína þegar að hann er hjá mömmu sinni. Hann var víst ekki alveg nógu ánægður með páskaeggið frá ömmu og afa í Bjálfa, það var BARA númer 3. Hann vildi víst fá stærra…hehe.

Ég á vinningin í ár….ég gerði skattaskýrsluna mína í gær. Alein…..sem var verra….þarf víst að borga. En mamma ætlar að hjálpa mér að fá þetta leiðrétt. Foreldrarnir eru svo yndislegir. Veit ekki hvar ég væri án þeirra. (Ég veit Helena, einn daginn þarf ég að slíta naflastrenginn…hehe).

Heyri annað slagið í Hrafndísi syss, er að spá í að heimsækja hana aftur og engar áhyggjur Hrafndís ég skal vera búin að safna mér pening;) hehe Sakna hennar einmitt helling.

Ég og Ingunn syss erum eilíflega að msnast eða ég í heimsókn. Fer oft í kaffi til hennar í hádeginu, þvílíkt brill.

Ég og Sirrý frænka erum orðin samloka þessa dagana. Slúður, kaffi, slúður, kaffi, slúður, kaffi. Það erum við Sirrý.

Ég heyri mjög svo reglulega í Helenu og hún í mér. Ég held að mest allur símareikningurinn fari í Helenu…hehe. Við getum endalaust talað saman. Lov’ya og sakna þín skvís. Og já ég er búin að fá frí 16, þá er þetta bara undir þér komið;)

Ég skora á hana Helenu elskuna mína að blogga, fyrst ég gat það þá getur þú það;) hehe

Hafrún, ógurlega hamingjusöm og ánægð með allt í kringum sig. Lífið gæti engan veginn verið betra:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 09:57:05 / Hafrún Brynja

???

Allt er vænt sem vel er grænt.

Af hverju segir fólk mér þá að henda matnum mínum sem er orðinn grænn í ísskápnum?

» 9 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 09:43:54 / Hafrún Brynja

......

Úff, þvílíkt og annað eins þorrablót. Ég og Sirrý vorum náttúrulega þær allra fallegustu á svæðinu. Skemmtiatriðin voru frábær, maturinn var þvílíkt góður og var þetta eiginlega bara mikið fjör og mikið gaman.

Merkilegt hvað sumt fólk getur verið vitlaust og óþroskað. Finnst þér allt í lagi að segja það sem þér finnst hverju skipti við alla og gera það sem þig lystir við alla en svo má ekki segja né gera neitt á móti?

Annars einkennist líf mitt af heimsóknum, kaffidrykkju, slúðri og síkarettum. Sirrý hefur ósjaldan komið þar nærri...hehe.

Steinunn systir Sirrýjar fær hrósið í dag. Hún greiddi okkur Sirrý og málaði fyrir þorrablót. Hún passaði líka fyrir Sirrý....svo stóóóórrr plús;)

En já stutt í dag, kem með lengra blogg næst....er nefnilega með slúður dauðans og sögu til að deyja fyrir....!

Hafrún......aldrei hamingjusamari:d

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 569 dögum
Verð ég 24.ára falleg kona;)
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 55653
Leitarbox